Cæsar - SAIGA
Haglabyssur sem virka

- Hálfsjálfvirkar -

Stækka mynd

GLADIUS | 250.000-kr
Þetta er "Deluxe" gerðin í þriggjaskota hálfsjálfvirku línunni frá Cæsar Guerini.
Hreyfanlegir hlutir eru sérstaklega meðhöndlaðir með Tinaloy meðferð, satín frágangur og rennisléttar hliðar.
Kemur með sjálflýsandi rauðu miði. Gikkurinn er gull-húðaður en lásinn og skipting er PVD títanium húðað.
Loka hönd á flúrið er gert í höndunum og þar er að finna fyrirtækja nafnið, byssugerð og 6 myndir af villibráð
Gylltir Cæsar fuglar: þrír fashanar á vinstrihlið og þrjár endur á hægri.
Prins af Whales afturskepti með púða og "splinter" forskepti, úr sérvöldum við.
Ól og þrjár útskiptanlegar þrengingar fylgja með.

Stækka mynd

ROMAN MMV | 200.000-kr

Þetssi er í milliviktarflokknum af hálfsjálfvirku línunni frá Cæsar Guerini.
Láshúsið er í möttum svörtum lit og hliðarnar eru flúraðar með nafni framleiðanda, byssuheiti ásamt gylltum fashana og gylltri önd á sitthvorri hliðinni.
Gikkbjörgin er fallega rúnuðu svo ekkert ætti að krækjast í henni. Gikkurinn sjálfur er gullhúðaður en boltinn og færsluarmur er Nikkel-húðað.
Á hlaupinu er úrfelldur hlaup-listi,6mm, með rauðu neon framsigti.
"Prince of Whales" skeftið og "Splinter" forskeftið eru úr sérvöldum olíubornum við.
Afturskeftið kemur með púða úr mjúku gúmmí til að minnka bakslagstilfinngu.
Ólarfestingar eru staðlaðar.
Þrjár þrengingar ásamt lykli fylgir með

Stækka mynd

SAIGA 12 | 180.000-kr
Hálfsjálfvirk gasskipt haglabyssa.
Byggð á grunni sívinsælu Kalashnikov herriflunum frægu, AK47.
Hönnuð fyrir veiðimenn sem geta lent í erfiðum aðstæðum. Því eins og alþjóð veit þá klikkar þessi hönnun ekki þó drulla, sandur, bleyta og frost herji á.

12-gauge hlaup sem tekur við haglaskotum og slögg. Magnum skot af stærðum 2 ¾" og 3". Tvö 5 skota magazín með pinna svo þau taki aðeins 3 skot fylgja með.

- Yfir/Undir -

^ Efst á síðu
Stækka mynd

Figura Light | 210.000-kr

Létt yfir undir haglabyssa. Allur frágangur vandaður og gerður til að endast. Nikkel húðaðir ál íhlutir gera þess byssu einstaklega létta og áreiðanlega.
Og til að auka endingu og áreiðnaleika eru íhlutirninr í þesari léttu úitgáfu húðaðir með sérstakri efnablöndu sem ver þá enn betur. Falleg flúrun er í málminum, og gylltu dýrin sem einkenna Cæsar Guerini byssurnar eru á báðum hliðum skothússins.
Haglabyssurnar í þessari línu eru með lökkuð valnhnetu viðarskeptum. Þægilegt pistólugripi á aftari skefti og Schnabel forskepti gera þessa byssu einkar skemmtilega í meðförum.
7mm úrfelldur hlaup-listi, 5 þrengingar og staðlaðar ólarfestingar eru hlutir sem fylgja öllum byssunum í þessari línu.

- Sérpantanir-

^ Efst á síðu
Stækka mynd

Leggðu inn fyrirspurn.
Við erum ekki með allar gerðir af haglabyssum á lager. En erum meira en fús til að útvega hinar ýmsu gerðir ef óskað er eftir slíku. Sendið inn fyrirspurn eða hringið og við finnum út hugsanlegan afhendingartíma og verð.

Molinn

Fyrirspurnir og pantanir velkomnar í síma eða tölvupóst.
S:693 9979 @:multitask@multitask.is

Y/U Byssurnar frá Cæsar eru mjög fallegar og eru rómaðar fyrir áreiðanleika.