Veišiferšir ķ boši

- Helgarpakkinn -
2 veišidagar og gisting

- Vikupakkinn -
5 dagar meš mat og gistingu.

- Sérsnišinn pakki -
Settu saman drauma pakkann žinn og fįšu verštilboš
@:heimir@multitask.is

Ęvintżraveiši į Austurlandi

- GĘSAVEIŠI -

Stækka mynd

Ógleymanlegar veišiferšir
Við bjóðum uppá helgarveiðiferðir og 5 daga veiðiferðir á Austurlandi fyrir 3 til 4 veiðimenn í einu.

Þér verður fylgt í veiði af reyndum leiðsögumönnum, sem aðstoða og leiðbeina við veiðina.
Gæsaveiðitímabilið, á bæði grágæs og heiðagæs, byrjar 20.ágúst. Hér endist veiðin fram í miðjan október.

Veiðimenn eru sóttir á Egilsstaðaflugvöll og komið fyrir í notalegu gistirými í nágrenni veiðisvæðis. Boðið er uppá sumarhús eða aðra álíka gistingu. Þar mun hópurinn hafa aðstöðu til að slappa af, borða góðann heimagerðann mat og sofa þá daga sem dvalið verður á austurlandi.

Daglega er flogiš milli Reykjavíkur og Egilsstaða. Verð á flugi getur verið breytilegt og hægt er að gera góð kaup ef pantað er með góðum fyrirvara.Flugfélag.is

Fimm daga ferðirnar byrja seinnipart mánudags og ná fram á föstudagsmorgun. Veiðidagar eru þá þriðjud., miðvikud., og fimmtudagur. Mánudagskvöld og föstudagsmorgun eru ætlaðir sem svokallaðir ferðadagar.

Helgarferðirnar eru frá föstudagskveldi fram á sunnudag. Veiði um helgar fer fram á laugardegi og sunnudegi.
Boðið er uppá veiði bæði kvölds og morgna, fer eftir vilja og getu veiðimanna.
Hver ferð getur verið sniðin að hverjum hóp og þeirra áhuga.

Það sem þú þarft að hafa með þér er haglabyssa og fatnaður sem hentar til útiveru á þessum árstíma.
Hlýr útivistarfatnaður, hlý undirnærföt og góðir skór eru algjör nauðsyn.
Felulitagallar sem passa yfir útivistarfatnað er í boði fyrir þá sem vilja. Og ef þú átt vöðlur þá eru þær mjög góðar og henta vel í flestum tilvikum. Neopren vöðlur eru mikið notaðar á gæsaveiðar.
Ýmis búnaður sem er nauðsynlegur til gæsaveiða er í boði fyrir veiðimenn gegn smá þóknun.

Eftirfarandi er þó alltaf innifalið í okkar pökkum:
Gisting
Farartæki
Felubyrgi
Gervigæsir
Matur (heimaeldaður staðbundinn matur, og auðvitað villibráð)

Veiðimenn þurfa að hafa með sér:
Haglabyssu, skotvopnaleyfi og veiðileyfi
Hlýjan útivistarfatnað
Vöðlur (æskilegt, ekki nauðsynlegt)
Gönguskó/Fjallgönguskó eða sambærilegt
Heyrnarhlífar (æskilegt, ekki nauðsynlegt)

 

Fyrirspurnir og bókanir eru velkomnar ķ tölvupóst eša sķma
S: 693 9979
@:heimir@multitask.is

Molinn

Fyrirspurnir og bókanir eru velkomnar, bęši gegnum sķma og tölvupóst
S.: 00 354 :693 9979 @:heimir@multitask.is

Heišagęsastofninn telur 450.000 fugla eša fleiri. Megniš af žessum fjölda heldur til uppį heišum Austurlands yfir sumartķmann. Žegar hagstętt vešur er fyrir gęsina
til aš feršast austur žį er ekki óešlilegt aš sjį žśsundir gęsa feršast saman