Veišiferšir ķ boši

- Helgarpakkinn -
Gisting, matur og veiši fyrir fjóra
Verš: 150.000-kr į mann

- Vikupakkinn -
5 dagar meš mat og gistingu fyrir fjóra.
Verš: 245.000-kr į mann

- Sérsnišinn pakki -
Settu saman drauma pakkann žinn og fįšu verštilboš
@:heimir@multitask.is

Ęvintżraveiši į Austurlandi

- HELGARPAKKINN -
Gisting, matur og veiši fyrir fjóra

Stækka mynd

Skreppitúrinn sem allir elska
Við bjóðum uppá helgarveiðiferðir á Austurlandi

Pakkinn er hugsašur fyrir 3 til 4 veišimenn
og er í boði frá 20.ágúst til 15.október.

Helgarferðirnar eru frá föstudagskveldi fram á sunnudag.
Veiði um helgar fer fram á laugardegi og sunnudegi.
Boðið er uppá veiði bæði kvölds og morgna, fer eftir vilja og getu veiðimanna og hversu seint į tķmabilinu žiš komiš (heišagęsin farin).
Hver ferð er sniðin að hverjum hóp og þeirra áhuga.

Eftirfarandi er innifalið í pakkanum:
Veiði að morgni og kveldi á laugardegi; Veiði að morgni á sunnudegi
Gisting í tvær nætur
Farartæki til og frá veiðistað
Felubyrgi eða felunet
Gervigæsir
Matur (heimaeldaður staðbundinn matur, og auðvitað eldum við gæs)

- Stutt lýsing á hefbundinni veiðiferð -
Þessi uppsetning á dögunum er aðeins sýnishorn.
Endanleg útgáfa af veiðiferðinni er algjörlega háð veðri og vindum sem og áhuga veiðimanna.


Föstudagskvöld: Veiðimenn eru sóttir á Egilsstaðaflugvöll og komið fyrir í notalegu gistirými í nágrenni veiðisvæðis.
Þar verður farið yfir helstu atriði veiðinnar. Öryggisatriði, umgengni um veiðisvæðið, fyrirhugaður veiðitími o.fl.

Laugardagsmorgun: Farið á fætur 1 til 2 klst fyrir birtingu. Morgunmatur og nesti græjað. Keyrt á veiðistað, gervigæsum stillt upp, öllu komið fyrir og felunet sett upp.Menn koma sér fyrir á völdum stöðum með byssur klárar.
Veiði byrjar rétt fyrir birtingu. Menn borða nesti og hafa gaman af.
Um hádegi er gengið frá og farið "heim" að borða. menn geta lagt sig eða haldið áfram að veiða.

Laugardagskvöld: Rétt eftir kaffileiti er hugað að kvöldveiði. Þá koma menn sér fyrir á líklegum náttstað gæsarinnar.
Veiðin byrjar í ljósaskiptunum og endist fram í svarta myrkur. Komið aftur "heim" rétt fyrir miðnætti ef vel hefur gengið.

Sunnudagsmorgun: Farið á fætur 1 til 2 klst fyrir birtingu. Nú eru menn orðnir sjóaðir og ætti uppstilling gervigæsa að taka stuttan tíma.
Veiði verður fram eftir morgni og jafnvel fram yfir hádegi ef menn eiga flug seint.
Búnaður er síðan tekinn saman og menn ganga frá gistirými. Hópnum skilað á Egilsstaðaflugvöll. Allir þreyttir og glaðir.

Menn geta haft með sér aflann ef þeir hafa gengið þannig frá honum í ferðinni. Einnig er í boði að skilja hann eftir og fá sendann heim. Ýmis verkun á bráðinni er í boði gegn vægu gjaldi.

Það sem veiðimaður þarf að hafa með sér er:
Haglabyssa
Fatnaður sem hentar til útiveru á þessum árstíma.
Hlý undirnærföt og góðir skór eru algjör nauðsyn.
Felulitaðir gallar æskilegir
Neopren vöðlur eru mjög góðar til að liggja í.
Heyrnarhlífar (æskilegt, ekki nauðsynlegt)


Felulitagallar sem passa yfir útivistarfatnað er í boði fyrir þá sem vilja.
Ýmis búnaður sem er nauðsynlegur til gæsaveiða er í boði fyrir veiðimenn gegn smá þóknun.

 

Fyrirspurnir og bókanir eru velkomnar ķ tölvupóst eša sķma
S: 693 9979
@:heimir@multitask.is

 

Fyrirspurnir og bókanir
S: 693 9979 @:heimir@multitask.is